Fátt er svo með öllu illt...

Það er víst að bresta á með fellibyl nú hjá okkur hér vestra.  Bylurinn er ekki nema miðlungskröftugur og ekki búist við meiri vindhraða en um 30-35 m/sek sem telst víst bara hressileg gola á Íslandi en gæti þó valdið skemmdum hér.

Ef við sleppum við að þakið fjúki af húsinu hefur þessi stormur hins vegar sínar jákvæðu hliðar - í gærkvöldi var rólegasta kvöld sem ég hef nokkurn tíma séð á bráðadeildinni, sárafáir töldu sig nægilega veika til þess að brjótast gegnum storminn og fara á sjúkrahús.  Sennilega verður vaktin í kvöld svipuð á meðan auga stormsins gengur yfir.

Vaktin á sunnudagskvöldið verður hins vegar eflaust brjáluð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband