Mánudagur, 24. september 2007
Aðgát skal höfð...
Ekki er hægt að segja að sterkasta hlið heilbrigðisstarfsfólks hér vestra sé umhyggja og mannvirðing. Fagleg nákvæmni og gæði þjónustunnar á pappír er mikil, en hér skín nokkuð í gegn hjá býsna mörgum starfsmönnum hversu lítil virðing er almennt borin fyrir lægri stéttum.
Þegar enginn heyrir til nema starfsfólkið er lítið kippt sér upp við þó verið sé að hlæja að sjúklingum og nota óvirðuleg orð um þá. Fyrir kemur að sjúklingum sé lýst sem "pice of shit" og einn sem ég vinn með hafði séð skammstöfunina SHPS notaða í sjúkraskrá - Subhuman pice of shit. Svona gerum við ekki heima á Íslandi.
Um daginn fór þessi óvani illa. Ungur maður kom inn í andarslitrunum eftir að hafa skotið sig í höfuðið og nokkrir af starfsfélögum mínum létu býsna margar létt spaugilegar en óvirðulegar athugasemdir falla á meðan verið var að reyna að bjarga honum á bráðadeildinni.
Þegar verið var að fara með hann í sneiðmynd af höfði tekur einhver eftir eldri manni sem stendur við dyrnar á neyðarherberginu sem hafði fylgst með allri vinnunni, maðurinn reyndist faðir sjúklingsins og starfar sem rafvirki á spítalanum. Hann hafði heyrt allt sem sagt var.
Vissulega er hluti þessara ummæla leið starfsfólksins til þess að verja sig óhugnaðinum, ef heilbrigðisstarfsfólk gengur í gegnum sömu þjáningar og aðstandendur í hverju tilviki er algerlega ómögulegt að starfa á bráðadeild.
Það eru samt til aðrar og betri leiðir til að geta starfað við bráðalækningar.
Athugasemdir
Það er ekki hægt að viðurkenna að það sé nauðsynleg vörn vegna aðstæðna að tala óvirðulega um deyjandi fólk. Ég get ekki ímyndað mér vanvirðu við mannlífið. Það hlýtur að vera til önnur leið.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.10.2007 kl. 20:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.