Sunnudagur, 16. nóvember 2008
Zeitgeist
Jæja Davíð, loksins kom ég því í verk að horfa á myndina Zeitgeist sem þú bentir mér á fyrir nokkru. Þú hefur rétt fyrir þér, þetta er mynd sem allir þurfa að sjá. Fyrir þá sem ekki þekkja þá fjallar þessi mynd um í raun þrjú brennandi heit samtímamál sem sennilega snerta alla jarðarbúa, trú, stríð og hagfræði.
Því miður er ekki hægt að kalla myndina almennilega heimildarmynd, heldur er hún augljóslega framleidd af fólki sem tilheyrir flokki samsæriskenningarsmiða - conspiracy einstaklinga. Á köflum fer hún talsvert aðeins yfir strikið í því að skrifa slæma þróun á reikning Dr Evil sem á að vera að spila með okkur. Í heild bara eru svo margir punktar sem fram koma í myndinni og fólk er almennt ekki meðvitað um að jafnvel þó ekki nema helmingur þeirra sé sannur mun myndin samt breyta heimsmynd þeirra sem á hana horfa.
Myndina Zeitgeist er hægt að horfa á frítt hérna að neðan og ég skora á þig sem þetta lest að sjá hana.
Athugasemdir
Horfðirðu ekki líka á Addendum?
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 17.11.2008 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.