Færsluflokkur: Bloggar

Spiders on drugs

Eins og sja ma a thessari faerslu er aftur nakvamlega ekki neitt ad gera her a fadingardeildinni.

 

 


Fullorðinsleikföng

Hingað til hef ég látið venjulega línuskauta duga, og þeir hafa fullnægt þörf minni fyrir hraða nokkuð vel.  Samtals hef éd dottið þrisvar á línuskautum á fullri ferð, í öll skiptin varð byltan blóðug þrátt fyrir að allar mögulegar hlífar væru til staðar.

Ætli ég láti því ekki bensínknúnu útgáfuna vera.

 

 


Felagsleg vandamal

Thessa dagana sit eg a faedingardeild en einhverra hluta vegna virdist ekki eitt barn aetla ad faedast i dag, deildin alveg tom og thvi fatt annad ad gera en hanga a netinu.  Thessi spitali er annars ahugaverdur fyrir ad vera katolskur og thvi mun laeknum ekki vera heimilt ad raeda getnadarvarnir vid sjuklinga.  Armur pafans er langur.

Eg helt ad eg thekkti nokkud vel til skuggahlida mannlegs samfelags en i starfi minu her a sjukrahusi i BNA virdist eg sifellt vera ad rekast a skrautlegri daemi. 

Her kippir ser enginn upp vid ad heyra af ungri atvinnulausri 8 barna modur a felagslegum botum.  Tho thad se nokkud slaem stada ein og ser baetir thad ekki stoduna ad vera med lifshaettulegan hjartasjukdom i ofanalag.  Ad hafa thurft ad leggjast inn fyrir halfu ari i bradri lifshaettu eftir kokainnotkun hefdi eg haldid ad vaeri botninn en thvi er fjarri.   Nu var komid vegna hjartabilunar og thetta skiptid eftir ad hafa reykt, drukkid og notad kokain og kannabis.

Welcome to America, segja samstarfsmenn minir.

Sem betur fer eru felagslegu vandamalin heima a Froni heldur einfaldari en thetta.


Vanþróuð ríki

babyLengi hefur mér verið nokkuð illa við hina almennt viðurkenndu skilgreiningu á þróuðum ríkjum og vanþróuðum löndum.  Því miður hefur þessi skipting byggst á iðnaðarframleiðslu, en slíkt brambolt er að mínu mati stórlega ofmetinn mælikvarði á það hversu háþróað samfélag er. 

Bandaríki Norður Ameríku, þar sem ég hef nú búið í um 6 vikur, eru almennt talin nokkuð háþróuð, amk telja hérlendir það sjálfir.  Ef fleiri þættir mannlífsins en iðnaðarframleiðsla væru skoðaðir þegar þroski ólíkra samfélaga væri borinn saman kæmi þetta líklega ólíkt út.  Tæland t.d. væri líklega með allra þróuðustu löndum jarðarinnar ef mælikvarðinn væri matargerðarlist almennings.  Ísland myndi væntanlega flokkast sem þróunarland, ekki sérlega langt komið en á réttri leið.

BNA held ég að væru einna neðst á listanum.  Land þar sem órotnandi plastbrauð er talið ætt, þar sem ég sé að börnum eru gefnar M&M coockies þegar þau vakna eftir miðdegislúrinn á leikskólanum og hefur alið af sér skyndibitamenningu, hlýtur að vera eitt hið aumasta á jörðinni hvað þennan menningarmælikvarða varðar.

Sem betur fer er þó hægt að nálgast lífrænt ræktaðan mat hérna en umræðan um mikilvægi mataræðis er þó óralangt frá því sem almennt gerist í Evrópu.  Bekkjarfélagi minn sem á 9 mánaða son þurfti t.d. að fá vottorð frá lækni til þess að syninum væri ekki gefnar pulsur í leikskólanum. 


Lítil typpi

Ástralska umferðarstofan er nú farin af stað með umfangsmikla áróðursherferð til að reyna að tengja hraðakstur við lítil typpi. Gæti náð til testosterónknúins hálvitahraðakstur, amk góð tilraun.

 

 


Nýtt listform

Staflaljóð er nýtt en einfalt listform sem virðist eiga upptök sín í Hollandi.

 

Resim+002

 

 


Oj

Öll erum við mannfólkið af sömu dýrategundinni, þó menningarmunurinn sé svo mikill að hægt sé að efast um það stundum.

Börn allra samfélaga virðast alla vega bregðast eins við þessu furðulega áreiti sítrónunnar.

 


Amerísk menning..

...er víst nokkuð áberandi í heiminum.  Eftir að hafa nú búið hérna í rúman mánuð fer ég hins vegar alltaf að hallast meira og meira að því að hápunktinum í þessu samfélagi hafi verið náð fyrir nokkru síðan og hér séu hlutirnir meira á niðurleið en í mörgum öðrum nútímasamfélögum.

Sennilega var toppnum náð á þeim tíma sem fyrirmynd þessa myndbands frá indónesísku fangelsi var gerð.  Áhrifin eru greinilega enn til staðar í heiminum.

 


Svart málfar

Almennt held ég að læknisstörfin hér vestra gangi bara nokkuð vel, þó hef ég stundum lent í smá vandræðum með að skilja svarta íbúa borgarinnar.

Látum vera að þeir noti orðalag eins og "I got the sugar and the pressure" sem er nokkuð auðskiljanlegt, en "I got the Arthur" eða "uncle Arthur" átti ég aðeins erfiðara með að skilja.

Svo reynast þeir bara meina arthritis - eða gigt á okkar ástkæra ylhlýja.


Fjórða meðganga

Það er svo sem ekkert óvenjulegt að rekast á konur á 4. meðgöngu þegar unnið er á sjúkrahúsi.  Um daginn rakst ég á eina hér á amerísku sjúkrahúsi sem var með smávægilegt vandamál, nokkuð gengin á sinni fjórðu meðgöngu.  Hún hafði eignast 3 börn en tvö þeirra á lífi.

Það sem sló mig nokkuð var hins vegar að hún var bara 21 árs gömul.  Enn merkilegra fannst mér síðan að hitt starfsfólkið kippti sér ekkert upp við þetta, alvanalegt er víst meðal lægri þjóðfélagshópa að vera komin með nokkur börn vel fyrir tvítugt.

Og ég sem hélt að Íslendingar væru sérlega duglegir við barneignir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband